Recent Updates
Recently added Catalysts
ALVO Positive Sentiment

Alvotech og Teva ná samningi um að sala AVT06 hliðstæðunnar við Eylea má hefjast í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026

Key Takeaway: Alvotech and Teva Pharmaceuticals have entered into an agreement with Regeneron to market AVT06, a biosimilar to Eylea, in the U.S. Sales could commence in Q4 2026, contingent upon meeting specific conditions. Alvotech has already received marketing approvals for AVT06 in Japan, the UK, and across Europe. Recent clinical trials demonstrated comparable efficacy and safety between AVT06 and Eylea.
Price reaction · baseline $4.73 (2025-12-18 close) · hit pre-market · 3 other ALVO headline(s) in the window, move may be shared
day 0 close · peak
+3.6%

Market Sentiment Analysis

POSITIVE FACTORS

  • Alvotech and Teva secured a marketing agreement for AVT06.
  • Sales of AVT06 can begin as early as Q4 2026.
  • Positive clinical trial results for AVT06 were reported.
  • Market approvals have already been granted in Japan and Europe.

BiopharmaWatch Analysis

From our catalyst data and publicly available data · not financial advice
Best trade, last catalyst
+128%
120-day peak, hindsight
Typical move
13.8%
average across 7 past catalysts
Lead asset
Stelara
Phase 3 · Psoriasis

Full Press Release Details

Alvotech (NASDAQ: ALVO) og Teva Pharmaceuticals, bandarískt dótturfyrirtæki Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (NYSE and TASE: TEVA), hafa náð samningi við Regeneron Pharmaceuticals sem veitir Alvotech og Teva heimild til að markaðssetja AVT06, hliðstæðu við líftæknilyfið Eylea (aflibercept), í Bandaríkjunum. Samkvæmt samningnum getur sala hliðstæðunnar hafist í Bandaríkjunum á fjórða ársfjórðungi 2026, eða fyrr að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
„Við höfum nýlega hlotið markaðsleyfi fyrir hliðstæðu okkar við Eylea í Japan og Evrópu og fögnum því að hafa náð samningi um hvenær sala á lyfinu getur hafist í Bandaríkjunum. Þetta tryggir að Alvotech og Teva geta verið í mjög góðri samkeppnisstöðu þegar kemur að markaðssetningu hliðstæðunnar í Bandaríkjunum á næsta ári, að fengnu markaðsleyfi FDA,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.
Markaðsleyfi fyrir AVT06 hefur þegar verið veitt í Japan, Bretlandi og öllum 30 ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins.
Í janúar á síðasta ári kynnti Alvotech jákvæðar niðurstöður klínískrar rannsóknar sem sýndu sambærilega klíníska virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT06 og Eylea hjá sjúklingum með aldurstengda vota augnbotnahrörnun (AMD) og var þar með markmiði rannsóknarinnar náð [1].
Um AVT06 (aflibercept)AVT06 eru raðbrigðasamrunaprótein og líftæknilyfjahliðstæða við Eylea (aflibercept). Hliðstæðan hefur verið samþykkt til markaðssetningar í Japan undir heitinu AFLIBERCEPT BS og undir vörumerkinj Mynzepli (aflibercept) í Bretlandi og á Evrópska efnahagssvæðinu. Aflibercept binst æðaþelsvaxtarþáttum (Vascular Endothelial Growth Factors, VEGF) og getur þannig hamlað bindingu og virkjun VEGF-viðtaka, nýæðamyndun og æðagegndræpi [2].
Heimildir[1] Agostini, H. et.al. (2025). A randomized, double-masked parallel-group, multicenter clinical study evaluating the efficacy and safety of the biosimilar candidate AVT06 compared to the reference product aflibercept in participants with neovascular age-related macular degeneration. Expert Opinion on Biological Therapy, 1–15.https://doi.org/10.1080/14712598.2025.2519531[2]Fylgiseðill AVT06 í Evrópu
Notkun vörumerkjaEylea er skráð vörumerki Regeneron Pharmaceuticals í Bandaríkjunum og Bayer AG í Evrópu og Japan.
Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna ávefsíðu Alvotech,fjárfestasíðu okkarog almennrivefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech áLinkedIn,Facebook,InstagramogYouTube.

Frequently Asked Questions

What is AVT06?

AVT06 is a biosimilar to Eylea, developed by Alvotech and Teva.

When can AVT06 be sold in the U.S.?

Sales of AVT06 can begin in Q4 2026, subject to certain conditions.

Where has AVT06 received marketing approval?

AVT06 has been approved in Japan, the UK, and across Europe.

What were the results of AVT06 clinical trials?

Clinical trials showed comparable efficacy and safety to Eylea.

Last updated: Dec 19, 2025