Recent Updates
Recently added Catalysts
ALVO Positive Sentiment Score: 65/100

Alvotech birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026

Key Takeaway: Alvotech (NASDAQ: ALVO) released its financial results for Q1 2026, reporting total revenues of $105.9 million, a decline from the previous year's $132.8 million. The company is actively pursuing market approvals for its biosimilars AVT16 and AVT80 in Europe and has commenced clinical trials for AVT29. Alvotech has also partnered with FUJIFILM Biotechnologies to enhance its manufacturing capabilities. Despite the revenue decline, there is a noted strong demand for its products in the market.

Market Sentiment Analysis

POSITIVE FACTORS

  • Alvotech reported total revenues of $105.9 million for Q1 2026.
  • The company is making significant progress in its market applications.
  • Alvotech has established a partnership with FUJIFILM Biotechnologies to enhance production capabilities.
  • There is strong underlying demand for its biosimilars in the market.

CONCERNS & RISKS

  • Total revenues decreased compared to $132.8 million in Q1 of the previous year.
  • The company anticipates no revenue from new drugs in the U.S. in 2026.
  • Production delays have impacted operational performance.

Full Press Release Details

Alvotech (NASDAQ US: ALVO, ÍSLAND: ALVO, STOKKHÓLMI: ALVO SDB)

Helstu niðurstöður

Ítarlegri tilkynning á ensku sem veitir nánari upplýsingar um fjárhag og rekstur á fyrsta ársfjórðungi 2026 er birt á slóðinni:https://investors.alvotech.com/earnings-calendarundir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“.

Helstu niðurstöður á fyrsta fjórðungi ársins 2026

• Heildartekjur1voru 105,9 milljónir dollara, samanborið við 132,8 milljónir dollara á fyrsta fjórðungi liðins árs
• Aðlöguð EBITDA1nam 24,4 milljónum dollara og framlegð af heildartekjum var 57%
Áfangar eftir lok fyrsta ársfjórðungs
• Alvotech lagði inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir AVT16 og AVT80, fyrirhugaðar hliðstæður við Entyvio, hjá Lyfjastofnun Evrópu (EMA)
• Klínísk rannsókn hófst á virkni og öryggi AVT29, fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk (Eylea HD), en stefnt er að leggja inn umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum á árinu 2028
• Alvotech gerði samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies sem tryggir félaginu aðgang að framleiðslugetu í Bandaríkjunum sem verður hrein viðbót við aðstöðuna á Íslandi

Ummæli Lisu Graver, forstjóra:

„Á liðnum ársfjórðungi náðum við ýmsum stefnumarkandi áföngum, undirbjuggum að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum, tókum mikilvæg skref í markaðssetningu og þróun nýrra hliðstæðna og unnum að markvissum endurbótum á framleiðsluaðstöðunni.
„Undanfarna mánuði höfum við endurbætt fjölmörg gæða- og framleiðslukerfi félagsins. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að eyða meiri tíma í þessar aðgerðir til að draga enn frekar úr þeirri áhættu að úttektir á framleiðsluaðstöðunni hafi áhrif á reksturinn. Við vildum einnig tryggja að þegar við sendum inn umsóknirnar að nýju til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), svari þær fyllilega öllum kröfum eftirlitsins. Endurbæturnar stuðla jafnframt að langtímavexti og verðmætasköpun félagsins.
„Heildartekjur og EBITDA-framlegð á fyrsta ársfjórðungi endurspegla að hægja þurfti á framleiðslu á meðan þessar úrbætur á framleiðsluaðstöðunni fóru fram. Við búumst við að tekjur af vörusölu aukist þegar framleiðslan kemst aftur í eðlilegt horf.
„Á viðskiptahliðinni verðum við vör við mikla undirliggjandi eftirspurn eftir öllum hliðstæðum okkar sem eru á markaði, þar á meðal fer eftirspurn enn vaxandi eftir hliðstæðunni við Humira í Bandaríkjunum.
„Við náðum einnig mikilvægum áföngum í lyfjaþróun, þar á meðal lögðum við inn umsókn um markaðsleyfi í Evrópu fyrir fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio og tókum inn fyrstu sjúklingana í lykilrannsókn á klínískri virkni og öryggi fyrirhugaðrar hliðstæðu við Eylea í háum styrk.
„Í dag tilkynntum við um samstarfssamning við FUJIFILM Biotechnologies um framleiðslu á nokkrum þeirra hliðstæðna sem við erum með á markaði og í þróun. Þetta treystir enn frekar framleiðslukeðjuna og dreifir áhættu, sem mun auðvelda næstu skref í markaðssetningu.
„Við leggjum ríka áherslu á að senda inn að nýju umsóknir um markaðsleyfi til FDA á þessum ársfjórðungi. Þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í síðan á síðasta ári gera þessar umsóknir traustari en bæta einnig alla aðstöðu okkar fyrir framleiðslu og þróun nýrra hliðstæðna. Með endurbótunum verðum við því enn betur búin undir næsta vaxtarskeið í sögu félagsins.

Afkomuspá fyrir árið 2026

Félagið gerir ráð fyrir að heildartekjur ársins 2026 verði á bilinu 650-700 milljónir dollara og aðlöguð EBITDA á bilinu 180-220 milljónir dollara. Lægri mörk afkomuspárinnar gera ráð fyrir engum tekjum af nýjum lyfjum í Bandaríkjunum á árinu 2026.

Boð á kynningu á uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung 2026:

Stjórnendur félagsins kynna uppgjörið í beinu streymi sem hefst kl. 12 fimmtudaginn 7. maí nk.

Til þess að hlusta á beint streymi af fundinum:https://edge.media-server.com/mmc/p/ppckxq33

Til þess að hlusta eða leggja fram spurningu úr síma (hverjum þátttakanda er úthlutað PIN):https://register-conf.media-server.com/register/BIdfe56c21c8d448efb09f3c30405bb00d

Kynningarglærur fyrir fundinn er að finna undir liðnum „Q1 2026 Earnings Call“ á slóðinni:https://investors.alvotech.com/earnings-calendar

Nánari upplýsingar veita:

Fyrir fjölmiðla –alvotech.media@alvotech.comBenedikt StefanssonSarah MacLeod

Fyrir fjárfesta -alvotech.ir@alvotech.comDr. Balaji V PrasadBenedikt Stefansson

Fjárhagsdagatal:

Uppgjör eftir hvern ársfjórðung er birt eins og sjá má í töflunni, eftir lokun markaða í Bandaríkjunum. Uppgjörsfundur fer fram næsta dag. Dagatalið er birt með fyrirvara um mögulegar breytingar.
Ársfjórðungur Birting uppgjörs Uppgjörsfundur
2F 2026 19. ágúst 2026 20. ágúst 2026
3F 2026 11. nóvember 2026 12. nóvember 2026
4F 2026 10. mars 2027 11. mars 2027

Um Alvotech

Alvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech hefur sett fimm hliðstæður á alþjóðlegan markað. Þá vinnur félagið meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, blóðsjúkdóma og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu Alvotechhttps://alvotech.is, á fjárfestasíðu okkarhttps://investors.alvotech.comog á vefsíðu félagsins á enskuhttps://alvotech.com. Þá má fylgjast með Alvotech á samfélagsmiðlunum LinkedIn, Facebook, Instagram, og YouTube.
1Tölurnar sýna tekjur, hagnað eða tap tímabilsins að teknu tilliti til einskiptis- og óreglulegra liða. Nánari upplýsingar er að finna í ítarlegri útgáfu tilkynningarinnar á ensku á vefsíðu Alvotech.

Frequently Asked Questions

What were Alvotech's total revenues for Q1 2026?

Alvotech reported total revenues of $105.9 million for Q1 2026.

What new drug applications is Alvotech pursuing?

Alvotech is pursuing market approvals for AVT16 and AVT80 in Europe.

Who is Alvotech partnering with for manufacturing?

Alvotech has partnered with FUJIFILM Biotechnologies to enhance production capabilities.

What is the revenue outlook for Alvotech in 2026?

Alvotech anticipates total revenues between $650-700 million for 2026.

When will Alvotech's earnings call be held?

Alvotech's earnings call will be held on May 7, 2026, at 12 PM.

Last updated: May 6, 2026