Recent Updates
Recently added Catalysts
ALVO Positive Sentiment

Mikil umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboði Alvotech á breytanlegra skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dollara

Key Takeaway: Alvotech announced the successful sale of convertible bonds totaling $108 million, driven by high investor demand. This funding will aid in the development of new biosimilar therapies, with plans to introduce 30 new products in the coming years. The company aims to enhance its manufacturing and marketing capabilities globally.
Price reaction · baseline $5.04 (2025-12-16 close) · hit pre-market · 5 other ALVO headline(s) in the window, move may be shared
day 0 close
-0.8%

Market Sentiment Analysis

POSITIVE FACTORS

  • Strong demand for the convertible bonds indicates investor confidence.
  • Funding will support the development of new biosimilar therapies.
  • Alvotech is expanding its production capabilities with new facilities.

BiopharmaWatch Analysis

From our catalyst data and publicly available data · not financial advice
Best trade, last catalyst
+128%
120-day peak, hindsight
Typical move
13.8%
average across 7 past catalysts
Lead asset
Stelara
Phase 3 · Psoriasis

Full Press Release Details

REYKJAVÍK (17. DESEMBER 2025) -Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt breytanleg skuldabréf að fjárhæð 108 milljónir bandaríkjadala til hóps um 20 alþjóðlegra fjárfesta í lokuðu útboði. Mikil umframeftirspurn var eftir bréfum í útboðinu. Fjármögnunin styður við fjárfestingu félagsins í þróun nýrra hliðstæðna líftæknilyfja, sem áætlað er að verði um 250 milljónir bandaríkjadala á næsta ári. Félagið er nú að þróa 30 hliðstæður líftæknilyfja og hefur byggt upp verðmætasta safn fyrirhugaðra hliðstæðna í lyfjaiðnaðinum. Þá er Alvotech að auka framleiðslu og styrkja aðfangakeðju sína, þar sem 4 nýjar hliðstæður eru á leið á markað á þessu og næsta ári.
Með fjármögnuninni getur Alvotech tryggt forskot í þróun nýrra líftæknilyfjahliðstæðna og haldið áfram að efla framleiðslu og markaðssetningu á alþjóðlegum mörkuðum.
„Við fögnum þessari niðurstöðu og mikilli umframeftirspurn alþjóðlegra fjárfesta í útboðinu,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech. „Þessi eftirspurn lýsir trausti fjárfestanna á viðskiptaáætlunum Alvotech og framtíðarhorfum félagsins, ásamt jákvæðu mati á þeim miklu verðmætum sem fólgin eru í þeirri fullkomnu aðstöðu til framleiðslu og þróunar sem við höfum byggt upp á undanförnum árum hér á Íslandi. Með þessari fjármögnun getum við ótrauð haldið áfram að þróa verðmætasta safn nýrra hliðstæðna í lyfjaiðnaðinum og markaðssetningu um allan heim, til að bæta aðgengi sjúklinga að hágæða líftæknilyfjum.“
Niðurstaða útboðsins
Hér er fjallað um helstu atriði en nánar er fjallað um skilmála skuldabréfanna í enskri útgáfu tilkynningarinnar.
Tímalína í viðskiptunum
16. desember nk. Útboð á skuldabréfum og hlutabréfum
Verðlagning og úthlutun skuldabréfa og hlutabréfa
17. desember nk. Viðskiptadagur (T)
19. desember nk. (T+2) Greiðsla fyrir hlutabréfin í viðskiptunum
22. desember nk. (T+3) Greiðsla fyrir breytanlegu skuldabréfin í viðskiptunum
Ráðgjafar
DNB Carnegie, sem er hluti af DNB Bank ASA er umsjónaraðili útboðsins. Roschier var lögfræðilegur ráðgjafi Alvotech varðandi sænsk lög, Arendt & Medernach SA varðandi lúxemborgísk lög, BBA//Fjeldco varðandi íslensk lög og Cooley LLP varðandi bandarísk lög. Advokatfirmaet Thommessen AS er lögfræðilegur ráðgjafi DNB Carnegie varðandi norsk lög.
Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna ávefsíðu Alvotech, áfjárfestasíðu okkarog áalmennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech áLinkedIn,Facebook,InstagramogYouTube.

Frequently Asked Questions

What amount did Alvotech raise through convertible bonds?

Alvotech raised $108 million through the sale of convertible bonds.

What will the funding from the bonds be used for?

The funding will support the development of new biosimilar therapies.

How many new products does Alvotech plan to introduce?

Alvotech plans to introduce 30 new biosimilar products.

Who managed the bond offering for Alvotech?

DNB Carnegie managed the bond offering for Alvotech.

Last updated: Dec 17, 2025