Recent Updates
Recently added Catalysts
ALVO Positive Sentiment

Alvotech kynnir jákvæða niðurstöðu rannsóknar á lyfjahvörfum AVT80, fyrirhugaðrar hliðstæðu við líftæknilyfið Entyvio

Key Takeaway: Alvotech announced positive results from its AVT80 biosimilar study, comparing it with Entyvio (vedolizumab). The study met all primary endpoints, indicating similar pharmacokinetics, safety, and tolerability. This achievement marks a significant milestone for Alvotech as it prepares to initiate market authorization applications. The results underscore the company's strength in biosimilar development.
Price reaction · baseline $5.09 (2026-02-04 close) · hit pre-market · clean, no other ALVO news in the window
day 0 close · peak
-2%

Market Sentiment Analysis

POSITIVE FACTORS

  • Successful completion of the AVT80 study.
  • Potential to advance towards market authorization.
  • Demonstrates the effectiveness and safety of AVT80 compared to Entyvio.
  • Highlights Alvotech's capabilities in developing biosimilars.

BiopharmaWatch Analysis

From our catalyst data and publicly available data · not financial advice
Best trade, last catalyst
+128%
120-day peak, hindsight
Typical move
13.8%
average across 7 past catalysts
Lead asset
Stelara
Phase 3 · Psoriasis

Full Press Release Details

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að jákvæð niðurstaða lægi fyrir úr rannsókn á lyfjahvörfum AVT80, fyrirhugaðrar hliðstæðu við líftæknilyfið Entyvio (vedolizumab).
Rannsókninni var ætlað bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT80 og Entyvio í heilbrigðum einstaklingum og voru allir aðalendapunktar hennar uppfylltir. Rannsóknin var slembiröðuð og tvíblinduð. Henni var ætlað að sýna fram á sambærileg lyfjahvörf, virkni, öryggi og ónæmingarverkun AVT80 og Entyvio í heilbrigðum einstaklingum. Lyfin voru gefin með sprautu undir húð.
“Við erum afar ánægð með þessa niðurstöðu. Hún markar mikilvægan áfanga í þróun hliðstæðunnar við Entyivo þar sem við getum nú þegar stigið næsta skref, sem er að hefja undirbúning umsókna um markaðsleyfi. Þessi árangur undirstrikar kosti þess að samþætta alla þróun og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæðna. Hér býr að baki hönnun hágæða framleiðsluferlis, þekking og aðstaða til greininga og reynsla í undirbúningi og skipulagi klínískra rannsókna,” sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rekstrar.
Alvotech er að þróa AVT16, fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio til innrennslis í æð og AVT80, fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio sem lausn í áfylltri sprautu eða lyfjapenna til notkunar undir húð. Rannsóknin á AVT80 nægir einnig til að sýna fram á að lyfjahvörf AVT16 séu sambærileg við Entyvio. Samkvæmt leiðbeiningum erlendra lyfjayfirvalda er Alvotech heimilt að reiða sig á niðurstöður rannsóknarinnar á lyfjahvörfum til að sýna fram á hliðstæða klíníska eiginleika beggja hliðstæðnanna í samanburði við Entyvio.
Entyvio (vedolizumab) er ætlað til meðferðar á fullorðnum einstaklingum með miðlungsvirka eða mjög virka sáraristilbólgu, sem veldur bólgum og sárum í ristli, og einstaklingum með miðlungsvirkan eða mjög virkan Crohns-sjúkdóm, sem veldur bólgum í meltingarvegi. Á síðasta ári voru tekjur af sölu Entyvio á heimsvísu um 930 milljarðar króna (6,4 milljarðar bandaríkjadala), samkvæmt ársfjórðungsreikningum framleiðanda frumlyfsins.
Um AVT16 og AVT80AVT16 og AVT80 innihalda einstofna mannamótefni (vedolizumab) og eru fyrirhugaðar hliðstæður við líftæknilyfið Entyvio. Virka efnið vedolizumab binst sértækt og hamlar alpha-4-beta-7 prótíninu sem er aðallega að finna á hvítum blóðkornum (e.T helper lymphocytes) sem eru til staðar í meltingarveginum og geta valdið bólgum, sem er eitt af einkennum sáraristilbólgu og Crohns-sjúkdómsins. AVT16 og AVT80 eru lyf í þróun og hafa ekki verið samþykkt til markaðssetningar. Staðfesting lyfjayfirvalda á hliðstæðum eiginleikum þeirra og frumlyfsins liggur ekki fyrir.
Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna ávefsíðu Alvotech, áfjárfestasíðu okkarog áalmennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech áLinkedIn,Facebook,InstagramogYouTube.

Frequently Asked Questions

What were the results of the AVT80 study?

The AVT80 study showed positive results, meeting all primary endpoints.

What is AVT80 compared to?

AVT80 is compared to Entyvio (vedolizumab) in the study.

What is the next step for Alvotech after the study?

Alvotech plans to begin preparations for market authorization applications.

What conditions does Entyvio treat?

Entyvio is used for treating ulcerative colitis and Crohn's disease.

Last updated: Feb 5, 2026