Recent Updates
Recently added Catalysts
ALVO Positive Sentiment Score: 75/100

Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna tekur til afgreiðslu umsókn Alvotech um markaðsleyfi fyrir AVT16, fyrirhugaða hliðstæðu við Entyvio

Key Takeaway: Alvotech announced that the FDA has accepted its application for market approval of AVT16, a proposed biosimilar to Entyvio (vedolizumab). This marks a significant step in Alvotech's efforts to enhance patient access to critical therapies. The collaboration with Teva Pharmaceutical will support the development and commercialization of AVT16 in the U.S.

Market Sentiment Analysis

POSITIVE FACTORS

  • FDA has accepted Alvotech's application for AVT16.
  • AVT16 aims to increase patient access to important therapies.
  • Collaboration with Teva enhances market entry strategy.

Full Press Release Details

Alvotech (NASDAQ: ALVO, ALVO SDB) tilkynnti í dag að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefði tekið til umsagnar og afgreiðslu umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT16, fyrirhugaða hliðstæðu með útskiptileika við Entyivo (vedolizumab) í hettuglasi.
„Það er mikilvægt skref í þróun AVT16 og liður í markmiði okkar að auka aðgengi sjúklinga um allan heim að mikilvægum líftæknilyfjum að FDA hafi nú tekið umsókn okkar um markaðsleyfi í Bandaríkjunum til umsagnar,“ sagði Joseph McClellan, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Alvotech. „Þróun Alvotech á fyrirhugaðri hliðstæðu með útskiptileika við Entyvio byggir á áralangri reynslu í þróun hliðstæðna líftæknilyfja við ónæmissjúkdómum og undirstrikar þá getu sem félagið býr yfir byggða á samþættingu lyfjaþróunar og -framleiðslu.“
Samkvæmt samstarfssamningi Alvotech og Teva Pharmaceutical Industries Ltd. („Teva“) sér Alvotech um þróun, skráningu markaðsleyfis og framleiðslu AVT16 en Teva um markaðssetningu og sölu í Bandaríkjunum.
Entyvio er líftæknilyf ætlað til meðferðar á fullorðnum sjúklingum með miðlungsvirka til mjög virka sáraristilbólgu eða Chrons-sjúkdóm.
AVT16 er eitt nokkurra hliðstæðna líftæknilyfja við sjálfsónæmissjúkdómum sem Alvotech er að þróa og hluti af stærra safni hliðstæðna í þróun sem ætlaðar eru til meðferðar við öðrum langvinnum sjúkdómum, þar á meðal krabbameini, beinþynningu, augnsjúkdómum, astma og dreyrasýki.
Gögnin sem lögð voru inn til umsagnar hjá FDA til að sýna að AVT16 hafi hliðstæða virkni og frumlyfið byggja meðal annars á ítarlegum greiningum sem framkvæmdar eru á rannsóknarstofu auk niðurstaðna úr klínískum rannsóknum á lyfjahvörfum og ónæmingarverkun lyfsins í mannslíkamanum.
Alvotech sækir um að AVT16 verði veitt markaðsleyfi með útskiptileika við frumlyfið. Sérstakar reglur í Bandaríkjunum takmarka heimild lyfsala til þess að afhenda hliðstæðu í stað frumlyfsins án þess að þess sé sérstaklega getið á útgefnum lyfseðli. Útskiptileiki, sem heimilar lyfsala að afhenda hliðstæðu gegn lyfseðli sem ávísað var fyrir frumlyfið, myndi því auka aðgengi sjúklinga og meðferðaraðila í Bandaríkjunum að hliðstæðu Alvotech þegar hún kemur á markað.
Í febrúar sl. kynnti Alvotech jákvæða niðurstöðu úr lykilrannsókn á lyfjahvörfum og ónæmingarverkun AVT80, sem er fyrirhuguð hliðstæða við Entyvio í áfylltri sprautu eða lyfjapenna. Rannsóknin bar AVT80 saman við frumlyfið og voru allir endapunktar hennar uppfylltir. Gögn úr þessari klínísku rannsókn á AVT80 nægja til að sýna fram á að klínísk virkni beggja fyrirhuguðu hliðstæðnanna við Entyvio, AVT16 og AVT80, sé sambærileg við frumlyfið.
Um AVT16AVT16 er fyrirhuguð hliðstæða við Entyvio (vedolizumab), sem er einstofna mannamótefni. AVT16 er innrennslisþykkni í hettuglasi ætlað til notkunar við inngjöf í æð. Lyfjastofnun Evrópu hefur þegar tekið til umsagnar umsókn um markaðsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu fyrir AVT16 og staðfest að umsóknin gildi einnig fyrir fyrirhugaða hliðstæðu Alvotech AVT80 sem er annað lyfjaform vedolizumab í áfylltri sprautu eða lyfjapenna.
Um EntyvioEntyvio (vedolizumab) binst sértækt við viðtaka á alpha-4-beta-7 integrin, sem er viðloðunarsameind sem gegnir veigamiklu hlutverki í ratvísi hvítra blóðkorna þegar þau sækja í vefi meltingarvegarins. Lyfið er ætlað til meðferðar á fullorðnum sjúklingum með miðlungsvirka til mjög virka sáraristilbólgu eða Chrons-sjúkdóm.

Notkun vörumerkjaEntyvio er skráð vörumerki Millenium Pharmaceuticals Inc.

Nánari upplýsingar veitir Alvotech, fjárfestatengsl og samskiptasviðBenedikt Stefánsson, forstöðumaðuralvotech.ir@alvotech.com

Um AlvotechAlvotech er líftæknifyrirtæki stofnað af Róberti Wessman sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þróunar- og framleiðsluþættir í höndum fyrirtækisins. Fimm hliðstæður hafa þegar hlotið markaðsleyfi og eru komnar á markað, hliðstæður við Humira (adalimumab), Stelara (ustekinumab), Simponi (golimumab), Eylea (aflibercept) og Prolia/Xgeva (denosumab). Þá vinnur Alvotech meðal annars að þróun líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu og krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum.
Frekari upplýsingar er að finna ávefsíðu Alvotech, áfjárfestasíðu okkarog áalmennri vefsíðu félagsins á ensku. Fylgjast má með starfsemi Alvotech áLinkedIn,Facebook,InstagramogYouTube.

Frequently Asked Questions

What is AVT16?

AVT16 is a proposed biosimilar to Entyvio (vedolizumab) developed by Alvotech.

What does FDA acceptance mean for Alvotech?

FDA acceptance indicates that Alvotech's application for AVT16 is under review for market approval.

Who is collaborating with Alvotech on AVT16?

Alvotech is collaborating with Teva Pharmaceutical Industries for the development and commercialization of AVT16.

What conditions is AVT16 intended to treat?

AVT16 is intended for treating moderate to severe ulcerative colitis and Crohn's disease.

Last updated: Jun 8, 2026